Tæknibær ehf

Verkstæði er opið:

Virka daga kl. 10:00 - 18:00
Lokað um helgar

Verslun er opin:

Virka daga kl. 10:00 - 18:30
Laugardaga kl. 12:00 - 17:00

Um Tæknibæ

Tæknibær er ein elsta starfandi tölvuverslun landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína í ágúst árið 1986 og takmarkaðist starfsemin í upphafi við heildsölu á samskiptabúnaði fyrir tölvur. Árið 1994 opnaði Tæknibær smásöluverslun og síðan þá hefur fyrirtækið boðið upp á heildarlausnir í tölvu- og samskiptabúnaði fyrir einstaklinga jafnt sem fyrirtæki.

Tæknibær opnaði netverslunina Computer.is í júlí árið 2000 en þar er lögð áhersla á mikið og breitt vöruúrval á samkeppnishæfu verði. Computer.is hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur og er ein fremsta netverslunin á sínu sviði á landinu.

Tæknibær er sérverslun með tölvur og tölvubúnað þar sem áherslan er lögð á gæði og þjónustu á samkeppnishæfu verði. Tæknibær hefur í gegnum tíðina myndað sterk tengsl við erlenda jafnt sem innlenda samstarfsaðila og birgja. Gott og skilvirkt samstarf hefur gert okkur kleift að mæta mismunandi kröfum viðskiptavina og endurspeglast það einkum í því mikla úrvali framleiðenda sem viðskiptavinir hafa úr að velja. Má þar helst nefna framleiðendur á borð við: Adaptec, AMD, Apple, ASUS, ATI, BlueJay, Canon, CNet, Creative Labs, Filemate, Fuji, Genius, Gigabyte, HP, HQ, Jetway, Hitatchi, Hyundai, Intel, König, LG, Logitech, Microsoft, NEC, Philips, Pinnacle, Pioneer, Plextor, Samsung, Seagate, Sony, Symantec, Thermaltake, Western Digital, ZyXEL og fleiri.

Nafn:Tæknibær ehf
Kennitala: 420797-2819, skráð í fyrirtækja- og hlutafélagaskrá
VSK númer: 54934
Heimilisfang: Skipholt 50c, 105 Reykjavík
Sími: 582-6000
Fax: 582-6009
Stofnað: 1986
Starfsmannafjöldi: 10
Veffang: www.tb.is
Netfang: mottaka@tb.is
 
Tæknibær ehf  ·  Kt. 420797-2819  ·  Skipholti 50c  ·  105 Reykjavík  ·  Sími: 582-6000  ·  Fax: 582-6009